Lífleg borgarvíngerð í Gautaborg í Svíþjóð. Þau kaupa þrúgur frá nokkrum þekktum víngörðum í Evrópu og flytja þær strax eftir uppskeru til víngerðarinnar í kælibílum. Til þess að knýja fram þau gæði sem þau vilja ná berast þrúgurnar til þeirra innan við tvo sólarhringa eftir að þær eru tíndar. Þessi leið hefur tíðkast í Gautaborg í mörg ár, og má nefna kaffibaunir, tóbak og malt sem hefur verið flutt inn í borgina og verkað þar.
"Að fá fersk vínber til að búa til vín er nýtt fyrirbæri í borginni okkar en í raun ekki vitlausara en nokkuð annað. Við trúum því staðfastlega að hægt sé að búa til frábært vín hvar sem er".