AMI er víngerð tveggja góðra vina, Paul Marchand og Willy Roulendes, en Ami er franska orðið yfir vinur. Þeir hafa starfsemina í Maranges dalnum, í suðurhluta Côte de Beaune í Bourgogne héraði.
Paul er vínbóndinn, náttúrulegur blindsmakkari með gríðarlega orku og lífskraft. Hann hefur einstaka sýn á landsvæði Bourgogne og djúpan skilning á vínekrum héraðsins. Willy er aftur á móti víngerðarmaðurinn, en er hann þekktur fyrir frábæran húmor og góðan skilning á víngerð almennt. Hans sín á AMI er að fá útrás og búa til eitthvað fallegt í leiðinni. Hlutverkin þeirra vina eru skýr og vinna þeir hrikalega vel saman sem sýnir sig í gæðavínum í nýjum Bourgogne stíl.