Savigny-lès-Beaune liggur rétt norðan við Beaune og er eitt stærsta og virtasta vínþorp Côte de Beaune. Savigny-lès-Beaune er þekkt fyrir fáguð og ilmrík Pinot Noir og þessi árgangur er gott dæmi um þann stíl. Ilmurinn opnast með rauðum kirsuberjum, villtum jarðarberjum og rifsberjum ásamt fíngerðum tónum af rósum, skógarbotni og mildu kryddi. Í munni er vínið létt á fæti en jafnframt djúpt og nákvæmt. Fersk sýra heldur utan um safaríkan ávöxtinn á meðan fínofin tannín gefa byggingu án þess að yfirgnæfa. Útkoman er einstaklega fágað Bourgogne sem verður aðeins meira heillandi eftir stutta öndun í glasi. Hentar vel með fuglum.
FuglOstur
Hentar vel með fuglum, svo sem önd og kjúklingi, auk sveppa og mildra osta.
Þegar pantað er, er hægt að velja um að sækja eða fá sent með Dropp.
Afhendingar: Skoðið um okkur dálkin
Dropp Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 frá þriðjudegi til föstudags ættu að berast samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Pantanir eftir kl. 11:00 eru afgreiddar næsta virka dag. Lokað um helgar.