Vínklúbbur Allsber
Vínklúbbur Allsber er klúbbur vínunnenda sem og byrjendur sem vilja einfalda lífið og kynnast nýjum og spennandi vínum.
Mánaðarlega fá klúbbmeðlimir þrjú mismunandi vín send til sín, ásamt kynningarbréfi sem fer í saumana á hverri flösku og kynnir vínbændur hverra vína til leiks.
Klúbbmeðlimir geta vænst þess að fá meðal annars flöskur sem eru pantaðar í litlu magni, einungis fyrir klúbbinn, og fara ekki í hefðbundna sölu!
Hvað færðu?
Pakkinn
Hver mánuður er öðruvísi og ættu áskrifendur að búast við góðri blöndu af vínum. Pakkinn er alltaf hagstæðari en að versla flöskurnar af Allsber.is
Áskrift
Engin skuldbinding eða uppsagnarfrestur. Allar flöskurnar hafa þann eiginleika að geymast vel, en svo er þetta frábær leið til að byggja upp vínskápinn!
Hlunnindi
Meðlimir klúbbsins fá forkaupsrétt á sjaldgæfum flöskum.
Sendingar
Pakkinn er sendur út í fyrstu viku hvers mánaðar, einnig er hægt að velja um að fá að sækja.
Hvernig virkar þetta?
Skráðu þig
Skráðu þig í klúbbinn hér á síðunni og veldu hvort þú vilt fá pakkann sendan eða sækja hann.
Fáðu kassann
Þrjú vín ásamt kynningarbréfi eru send út í fyrstu viku hvers mánaðar, eða þú sækir pakkann til okkar.
Njóttu
Hver mánuður er öðruvísi. Njóttu vínanna og kynntu þér vínbændurna í kynningarbréfinu.
Spurt og svarað
Hvenær er rukkað?
Rukkað er 3. hvers mánaðar.
Hvenær fæ ég flöskurnar?
Sendingar fara út í fyrstu viku hvers mánaðar.
Er ég að skrá mig of seint?
Ef þú skráir þig seint í mánuðinum (minna en 14 dögum fyrir 3. hvers mánaðar) færðu kassann þinn strax, en við sleppum gjaldfærslunni um næstu mánaðamót. Þín fyrsta venjulega endurnýjun fer því ekki fram fyrr en mánuðinum þar á eftir.
