Terms of service
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu allsber.is til viðskiptavina.
2. ALDURSTAKMARK
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu allsber.is hjá Mistreti Beverages SRL. VSK númer félagsins á Íslandi er 154894. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur allsber.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Þessir skilmálar eru samþykktir við fyrstu vörukaup eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir.
3. AFHENDING
Allar vörur sem allsber.is býður til sölu í vefverslun sinni eru á lager á Íslandi og eru afgreiddar úr vöruhúsinu samdægurs eða síðasta lagi næsta dag sem opið er. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram. Ef vara reynist ekki til þegar hún er pöntuð vegna rangrar skráningar í birgðahaldi þá munum við hafa samband við viðskiptavininn og bjóða aðra vöru í staðinn eða endurgreiðslu.
4. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því viðskiptin fara fram. Vegna eðlis bjórs, víns og annarar matvöru sem allsber.is selur er ekki hægt að skila vörum af þessu tagi gegn nema samkvæmt sérstöku samkomulagi þegar um er að ræða kaup á miklu magni fyrir veislur og þess háttar.
5. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, ýmist 11% eða 24%.
6. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Hægt er að greiða með með öllum helstu greiðslukortum.
7. VARNARÞING
Rísi ágreiningur vegna þessara skilmála skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
8. UPPLÝSINGAR
Mistreti Beverages SRL
Street Alexandru Lapusneanu 185A, building LP4, apartment 25
Constanta, Romania
VAT no. 43417207
VAT no ISL: 154894
