Vínkeldan er nýsprottið brugghús á íslenskum markaði en hefur átt sér langann aðdraganda.
Starfsmenn okkar í dag eru þrír talsins úr ýmsum áttum og atvinnuvegum en eigum það
sameiginlegt að hafa mikla ástríðu á matargerð og njóta lífsins.
Eftir 8 ár af tilraunum tókum við okkar fyrstu skref 2024 og framleiddum okkar fyrsta árgang í
“Hamsahúsinu” í Bárðardal. Sá árgangur er kominn í sölu nú þegar. Í dag erum við staddir
með framleiðslu okkar í Hveragerði og öll ræktun sunnan Selfoss.
Dagskráin er þétt og hugmyndabankinn fullur og við erum spenntir að takast á við næstu
verkefni og næsta kafla í íslenskri bruggmenningu.
Hugmyndafræði Vínkeldunnar er ekki flókin í eðli sínu en við leytumst við að bera virðingu
fyrir hráefni og ræktun þess, allt sem við getum ræktað til framleiðslu munum við gera,
Íslensk hráefni í forgang og þróun handverksins.
Okkar helsta markmið er að færa neytendum bragðgóða, náttúrulega og fallega vöru allt frá
garði í glas.