Vínbóndinn Valentin Montanet er með litla víngerð í Saint-Père og nærliggjandi svæðum sem kenna sig við þorpið Vézelay. Foreldrar hans byrjuðu lífræna víngerð á svæðinu skömmu fyrir aldamót og hefur Valentin tekið við víngerðinni í dag. Vínrækt í Vézelay á sér áhugaverða sögu, en hún varð nánast útdauð eftir vínlúsafaraldurinn á 19. öld. Á síðustu áratugum hefur hún hins vegar risið upp á ný með metnaðarfullum víngerðarmönnum sem leggja áherslu á náttúrulegar aðferðir og sjálfbærni eins og Valentin Montanet.
Landfræðilega er Vézelay nær Loire-dalnum en helstu vínsvæði Bourgogne, sem gefur því aðeins öðruvísi karakter. Jarðvegurinn er að mestu kalksteinn, svipað og í Chablis, sem gefur vínunum steinefnakenndan og hressandi karakter. Á svæðinu ríkir svalt meginlandsloftslag sem gefur vínunum ferskleika og góða sýru.