Látlaus Syrah þar sem þrúgan kemur fram í allt öðrum búningi en við eigum oft að venjast. Engin þungavigt eða yfirgnæfandi ávöxtur, heldur vín þar sem kryddið, jurtirnar og sýran dansa listir sínar. 2025 árgangurinn er sérstaklega beinn og grannur, með dökkum berjum, pipar og ákveðnum jarðtónum. Tannínið er hófstillt en gefur víninu góða byggingu og áferðin er þurr og nákvæm. Eins og með svo mörg vín Matassa er hér lítið verið að fela sig á bak við eik eða annað eins. Fullkomið með pastaréttum.
KjötFlammkuchen & pítsa
Passar vel með pasta, grilluðum mat og svínakjöti.
Þegar pantað er, er hægt að velja um að sækja eða fá sent með Dropp.
Afhendingar: Skoðið um okkur dálkin
Dropp Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 frá þriðjudegi til föstudags ættu að berast samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Pantanir eftir kl. 11:00 eru afgreiddar næsta virka dag. Lokað um helgar.