AEIOU 2025

Venjulegt verð
11,450 kr
Verð
11,450 kr
Venjulegt verð

Land: Austurríki

Landsvæði: Burgenland

Þrúga: Chardonnay

Týpa: Hvítvín

Alkóhól: 12%

Stærð: 750 ml.

Innflutningsaðili: Rætur & Vín

2 eftir

Þú munt finna fyrir steinefnaríkri nákvæmni og einkennandi keim af jurtum sem finna má í öllum hvítvínum Christians. Búast má við einstökum tónum af súrsuðum gúrkum, sítrónuberki, brenninetlu og steinefnakeim sem minnir á blauta steina. Virkilega magnað. Skelltu henni í karöflu til að fá enn meira úr þessu málverki.

Frá einum vínekruhluta og einni tunnu. Hér skín í gegn snilldin sem býr í þessum eina Chardonnay-reit frá frábæru árgangi. Vínviðurinn vex á sjaldgæfum flögubergsjarðvegi og er ræktaður með tvöföldu stuðningskerfi. Bein og hörð samkeppni vínviðarplantnanna tveggja sem vaxa hlið við hlið eins og tvíburar, neyðir ræturnar til að sækja næringu og vatn djúpt í jarðveginn, en þar með draga þær einnig í sig ríkulegt magn steinefna. Samanlögð uppskera þessara tveggja plantna jafngildir uppskeru einnar plöntu í hefðbundinni ræktun. Smærri og lausari þrúguklasarnir búa yfir þéttum ilm og jafnvægi í sýru, sem tryggir steinefnaríkan karakter og ferskleika samhliða mikilli þroskun. A.E.I.O.U. – elskað af þeim sem þekkja til, en hatað af öðrum.

Þegar pantað er, er hægt að velja um að sækja eða fá sent með Dropp.

Afhendingar: Skoðið um okkur dálkin

Dropp Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 frá þriðjudegi til föstudags ættu að berast samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Pantanir eftir kl. 11:00 eru afgreiddar næsta virka dag. Lokað um helgar.

Nánar

Þú gætir einnig fílað