Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu allsber.is til viðskiptavina.
2. ALDURSTAKMARK
Viðskiptavinir þurfa að hafa náð 20 ára aldri til þess að geta keypt vörur á allsber.is Við stofnun aðgangs á allsber.is þurfa viðskiptavinir að auðkenna aldur sinn með rafrænum skilríkjum. Síðan þarf viðskiptavinur að auðkenna aldur á 30 daga fresti. Viðskiptavinir bera sjálfir ábyrgð á því að aðgangsauðkenni komist ekki í hendur einstaklinga sem hafa ekki náð 20 ára aldri.
3. AFHENDING
Allar vörur sem allsber.is býður til sölu í vefverslun sinni eru á lager á Íslandi og eru afgreiddar úr vöruhúsinu samdægurs eða síðasta lagi næsta dag sem opið er. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram. Ef vara reynist ekki til þegar hún er pöntuð vegna rangrar skráningar í birgðahaldi þá munum við hafa samband við viðskiptavininn og bjóða aðra vöru í staðinn eða endurgreiðslu.
4. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því viðskiptin fara fram. Vegna eðlis bjórs, víns og annarar matvöru sem allsber.is selur er ekki hægt að skila vörum af þessu tagi gegn nema samkvæmt sérstöku samkomulagi þegar um er að ræða kaup á miklu magni fyrir veislur og þess háttar.
5. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, ýmist 11% eða 24%.
6. PERSÓNUVERND
allsber.is fer með allar upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðarmál. allsber.is geymir ekki upplýsingar um greiðslukort þar sem viðskiptin fara fram á vefsvæði allsber.is
7. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Hægt er að greiða með með öllum helstu greiðslukortum.
8. VARNARÞING
Rísi ágreiningur vegna þessara skilmála skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
9. UPPLÝSINGAR
MISTRETI BEVERAGES SRL
ID: 43417207
